NÆSTA ÞREPAKADEMÍA

Prógrammið

Þrep fyrir þrep.

Einkaþjálfun á vellinum og í lyftingasalnum, byggð í kringum markmið hvers leikmanns.

Taktu fyrsta þrepiðSkráning og greiðsla í gegnumAbler

Átta vikur. Eitt þrep í einu.

Ein æfing á viku, byggð í kringum markmið leikmannsins. Við mælum í byrjun, vinnum markvisst í 8 vikur og mælum aftur. Svo tekur hann næsta þrep.

01

Boltinn

Tækni, móttaka, afgreiðslur og ákvarðanir, þjálfað eins og í leik.

02

Líkaminn

Hraði og styrkur sem passar aldri og þroska, með meiðslavörnum.

03

Venjurnar

Svefn, næring og endurheimt, því framfarir gerast líka utan vallar.

Ein lota · 8 vikur

  1. Vika 1Mæla
  2. Vikur 2–4Læra
  3. Vikur 5–7Byggja
  4. Vika 8Mæla aftur

Mælingarnar

Það sem við mælum.

Mælt í viku 1 og aftur í viku 8. Sömu próf, sama fólk og sama upphafsmerki, svo samanburðurinn sé réttur.

Hröðun
10 m
Sprettur. Fyrstu skrefin, sem skipta mestu í leik.
Hámarkshraði
30 m
Sprettur. Hraðinn þegar leikmaðurinn er kominn á ferð.
Styrkur
× 5
Framhnébeygja. Þyngsta þyngd í 5 endurtekningum með góðri tækni.
Augnmat
1–5
Móttaka, rakning og afgreiðslur. Sömu viðmið í hvert sinn, tekið upp á myndband.

Lokaskýrsla · Vika 8

Sýnidæmi

10 m sprettur

−0,13 s
Vika 12,06 s
Vika 81,93 s
Miðlungs→Hraður

30 m sprettur

−0,14 s
Vika 14,52 s
Vika 84,38 s
Miðlungs→Hraður

Sýnidæmi, ekki raunverulegur leikmaður · 13 ára

Lokaskýrsla · Vika 8

Sýnidæmi

Framhnébeygja

+10 kg
Vika 1Eigin þyngd
Vika 810 kg
Tækni 3/5→Tækni 4/5

Augnmat á vellinum

Tekið upp á myndband
Móttaka
3 → 4
Rakning
3 → 3
Afgreiðslur
2 → 4

Sýnidæmi, ekki raunverulegur leikmaður · 13 ára

Sýnishorn

Ein æfing úr vallarsafninu.

Hver æfing er byggð á því sem gerist í leik og því sem gögnin sýna að virkar. Hér er ein af mörgum.

Vallarsafnið · Æfing 24 · Afgreiðslur

Hraðabreyting.

Fyrir kantmenn: sprettur með boltann niður kantinn, hægja snöggt á sér við síðustu keiluna og taka snertingu inn. Skot niðri í fjærhornið.

92% mörk KantmaðurSpretturHægja áSnerting innVarnarmaðurFjærhornið niðri V L Hreyfimynd
RakningSnertingSkot
Búnaður
Mark, 4 keilur, 10–12 boltar
Magn
3 × 6, frá báðum köntum
Mat
Augnmat þjálfara

Í fjórum skrefum

  1. 1SpretturHratt meðfram keilunum, boltinn nálægt
  2. 2Hægja áVið síðustu keilu, líkaminn yfir boltanum
  3. 3Snerting innFram fyrir varnarmanninn
  4. 4SkotInnanfótar, niðri í fjærhornið

Gögnin · líkur á marki ef skotið hittir svæðið

9%561 skot20%121 skot87%151 skot7%1156 skot14%228 skot80%190 skot8%2398 skot21%375 skot92%511 skot

Af hverju hér? Niðri í fjærhorninu: 92% skota sem hitta það vinstra megin úr teignum enda í marki. Hraðabreytingin býr til plássið: varnarmaðurinn fylgir sprettinum og þegar kantmaðurinn hægir snöggt á sér opnast leiðin inn.

Vinstra megin í teignum, 8–18 m frá marki: 10.512 skot í gögnunum. 54% hittu markið. Hvítur rammi = ráðlagða skotið. Heimild: StatsBomb opin gögn.

Framvinda · upp þegar þjálfarinn metur að gæðin haldast

  1. Án varnarmanns

    Tempóið rétt

  2. Hálfvirkur varnarmaður

    Les hraðabreytinguna

  3. Varnarmaður á fullu

    Eins og í leik

Lykilatriði
  • Fullur hraði í sprettinum
  • Snögg hraðabreyting
  • Snertingin frá varnarmanninum
  • Innanfótar í fjærhornið

Takmarkaður fjöldi plássa

Taktu næsta þrep.

Einn tími á viku fyrir leikmenn 12–20 ára, á vellinum eða á vellinum og í lyftingasal. Fyrstu tímarnir eru í janúar.

Skráning og greiðsla í gegnumAbler

Spurningar? Bókaðu 15 mín spjall

Bókanir opnast í næstu viku.

Við erum að klára að setja upp skráningu og greiðslu í Abler. Kíktu aftur í næstu viku, eða heyrðu í okkur strax ef þú ert með spurningar.

Viltu heyra í okkur á meðan?

Spurningar? Bókaðu 15 mín spjall