NÆSTA ÞREPAKADEMÍA

Pakkar og verð

Veldu þitt þrep.

Einn tími á viku. Venjur og endurheimt eru innifaldar í öllum pökkum, og 8 vikna prógrömm eru með 10% afslætti.

Fyrsta þrepið

Til að kynnast prógramminu áður en farið er í heila lotu.

10.000 kr / viku

2 vikur · einn tími á viku

  • Tveir 60 mín tímar á vellinum
  • Mælingar og markmið í fyrri tímanum, æfing í báðum
  • Stutt samantekt fyrir foreldra

Samtals 20.000 kr

Völlurinn

Tækni, móttaka, afgreiðslur og hraði á vellinum.

10.000 kr−10%

9.000 kr / viku

8 vikur · einn tími á viku

  • Einn 60 mín tími á viku í 8 vikur
  • Mælingar í viku 1 og viku 8
  • Upphafs- og lokaskýrsla
  • Venjur og endurheimt

Samtals 72.000 kr

Völlur og lyftingar

Allt í Völlurinn, auk styrks og hraða í lyftingasal.

15.000 kr−10%

13.500 kr / viku

8 vikur · einn tími á viku

  • 60 mín á vellinum og 30 mín í sal, einu sinni í viku
  • Styrkur sem passar aldri og þroska
  • Mælingar, skýrslur og venjur

Samtals 108.000 kr

Vinapakkinn

Tveir vinir æfa saman. Meiri samkeppni, meiri leikur.

Vinaverð

Á mann · 8 vikur · tveir saman

Völlur10.000 kr

7.250 kr / viku

Völlur og lyftingar15.000 kr

11.000 kr / viku

  • Einn tími á viku, tveir saman: 60 mín á vellinum, eða 60 + 30 mín í sal
  • 1 á móti 1, sendingar og leikrænar æfingar
  • Mælingar, skýrslur og venjur fyrir báða

Samtals 58.000 / 88.000 kr á mann

Hvor vinur skráir sig sér, á vinaverði.

Aldur:
12–20 ára
Staður:
Afturelding, Mosfellsbær
Skráning og greiðsla:
í gegnum Abler

Algengar spurningar.

Finnurðu ekki svarið? Bókaðu stutt spjall á netinu eða sendu okkur línu.

Spurningar? Bókaðu 15 mín spjall
Hvernig skrái ég leikmann og greiði?

Skráning og greiðsla fer fram í gegnum Abler, sama kerfi og flest íþróttafélög nota. Þú velur pakka, skráir leikmanninn og greiðir með korti. Staðfesting kemur í tölvupósti og þú sérð skráninguna líka í Abler appinu.

Fyrir hverja er þetta?

Leikmenn á aldrinum 12–20 ára sem vilja bæta sig umfram liðsæfingarnar. Æfingarnar eru lagaðar að aldri, getu og álagi hjá félaginu.

Er hægt að prófa fyrst?

Já. Fyrsta þrepið er tveir tímar: mælingar og markmið í fyrri tímanum og æfing í báðum. Svo er hægt að halda áfram í 8 vikna prógramm.

Hvar fara æfingarnar fram?

Hjá Aftureldingu í Mosfellsbæ, innanhúss yfir veturinn. Lyftingahlutinn fer fram í lyftingasal strax á eftir vallaræfingunni.

Hvað gerist eftir 8 vikur?

Við mælum allt aftur og förum yfir framfarirnar með leikmanni og foreldrum. Svo setjum við ný markmið og leikmaðurinn tekur næsta þrep.

Fá foreldrar að fylgjast með?

Já. Hver leikmaður fær byrjunarskýrslu í viku 1 og lokaskýrslu í viku 8, og foreldrar eru með í lokaspjallinu.

Er þetta öruggt fyrir unga leikmenn?

Tæknin kemur alltaf fyrst og þyngdin svo. Í upphafi hverrar æfingar er innritun og álagið stillt eftir því hvernig leikmaðurinn er stemmdur, og sérstaklega passað upp á vaxtarkipp.

Hvernig virkar jólagjöfin?

Þú pantar fyrir 22. desember og færð gjafakort í tölvupósti til að setja undir tréð. Æfingarnar hefjast í janúar og tímarnir gilda til 30. apríl 2027.

Takmarkaður fjöldi plássa

Taktu næsta þrep.

Einn tími á viku fyrir leikmenn 12–20 ára, á vellinum eða á vellinum og í lyftingasal. Fyrstu tímarnir eru í janúar.

Skráning og greiðsla í gegnumAbler

Spurningar? Bókaðu 15 mín spjall

Bókanir opnast í næstu viku.

Við erum að klára að setja upp skráningu og greiðslu í Abler. Kíktu aftur í næstu viku, eða heyrðu í okkur strax ef þú ert með spurningar.

Viltu heyra í okkur á meðan?

Spurningar? Bókaðu 15 mín spjall