NÆSTA ÞREPAKADEMÍA

Jólagjöfin 2026

Gefðu næsta þrep.

Jólagjöf fyrir unga leikmenn 12–20 ára. Æfingarnar hefjast í janúar og gjafakortið kemur í tölvupósti, tilbúið undir tréð.

Pantaðu fyrir 22. desember Gjafakort í tölvupósti Æfingabolur fylgir stóru gjöfinni

Litla gjöfin

Fyrsta þrepið

Tveir tímar til að kynnast prógramminu: mælingar og markmið í fyrri tímanum, æfing í báðum.

Völlurinn
18.000 kr
Völlur og lyftingar
27.000 kr

Góð byrjun. Leikmaðurinn getur svo haldið áfram í 8 vikna prógramm.

Skráning og greiðsla í gegnumAbler

Tímarnir gilda til 30. apríl 2027.

Stóra gjöfin

Hvað er í pakkanum?

8 vikur frá janúar, með mælingum í upphafi og lok.

  1. 1 Vika 1

    Upphafsmæling

    Sprettur á 10 m og 30 m og mat á tækni, svo við vitum hvar leikmaðurinn byrjar.

  2. 2 Vikur 1–8

    8 einkatímar

    Einn tími á viku: á vellinum, eða á vellinum og í lyftingasalnum.

  3. 3 Alla lotuna

    Venjur og endurheimt

    Svefn, næring og endurheimt. Innifalið.

  4. 4 Vika 8

    Lokamæling og skýrsla

    Sömu mælingar aftur, bornar saman við viðmið fyrir aldurinn.

Æfingabolurinn

NÆSTA ÞREPAKADEMÍA

Fylgir stóru gjöfinni

Æfingabolurinn.

Svartur öndunarbolur fyrir æfingar. Fylgir stóru gjöfinni.

Efni
Svartur öndunarbolur (dri-fit)
Framan
Merkið vinstra megin á brjósti
Aftan
„Næsta þrep akademía“ við háls og þrepin neðst
Stærðir
140–164 og XS–M

Svona virkar þetta

Þrjú skref að jólagjöfinni.

  1. 1

    Þú pantar

    Veldu gjöfina og pantaðu fyrir 22. desember.

  2. 2

    Kortið kemur í pósti

    Gjafakort með nafni leikmannsins kemur í tölvupósti, tilbúið til útprentunar.

  3. 3

    Æfingar hefjast í janúar

    Leikmaðurinn bókar fyrsta tímann og tímarnir gilda til 30. apríl 2027.

Algengar spurningar.

Fyrir hverja er þetta?

Leikmenn á aldrinum 12–20 ára sem vilja bæta sig umfram liðsæfingarnar. Æfingarnar eru lagaðar að aldri, getu og álagi hjá félaginu.

Hvar fara æfingarnar fram?

Hjá Aftureldingu í Mosfellsbæ, innanhúss yfir veturinn. Lyftingahlutinn fer fram í lyftingasal strax á eftir vallaræfingunni.

Hvað gerist eftir 8 vikur?

Við mælum allt aftur og förum yfir framfarirnar með leikmanni og foreldrum. Svo setjum við ný markmið og leikmaðurinn tekur næsta þrep.

Hvernig virkar jólagjöfin?

Þú pantar fyrir 22. desember og færð gjafakort í tölvupósti til að setja undir tréð. Æfingarnar hefjast í janúar og tímarnir gilda til 30. apríl 2027.

Takmarkaður fjöldi plássa

Taktu næsta þrep.

Einn tími á viku fyrir leikmenn 12–20 ára, á vellinum eða á vellinum og í lyftingasal. Fyrstu tímarnir eru í janúar.

Skráning og greiðsla í gegnumAbler

Spurningar? Bókaðu 15 mín spjall

Bókanir opnast í næstu viku.

Við erum að klára að setja upp skráningu og greiðslu í Abler. Kíktu aftur í næstu viku, eða heyrðu í okkur strax ef þú ert með spurningar.

Viltu heyra í okkur á meðan?

Spurningar? Bókaðu 15 mín spjall